
Umreiknari
Til að umreikna mælieiningar frá einni einingu til annarrar
skaltu ýta á
og velja
Vinnuforrit
>
Umreikn.
.
Áreiðanleiki forritsins
Umreikn.
er ekki fullkominn og
námundunarvillur eru mögulegar.
1
Í
Gerð
reitnum skaltu velja mælieininguna sem
þú vilt nota.
2
Veldu gildið sem þú vilt umreikna úr í fyrri
Eining
-reitnum. Í næsta
Eining
-reit skaltu velja
gildið sem þú vilt umreikna í.
3
Sláðu inn gildið sem þú vilt umreikna í fyrri
Magn
-reitinn. Hinn
Magn
-reiturinn breytist
sjálfkrafa og sýnir umreiknaða gildið.
Grunngjaldmiðill og gengi
Veldu
Gerð
>
Gjaldmiðill
>
Valkostir
>
Gengisskráning
.
Áður en hægt er að umreikna gjaldmiðil þarf að velja
grunngjaldmiðil og gengi. Gengi grunngjaldmiðilsins
er alltaf 1.
Til athugunar: Þegar grunngjaldmiðli er breytt
verður að færa inn nýjar gengistölur þar sem allar
fyrri gengistölur eru hreinsaðar.