
Stjórnandi tækis
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Stj. tækis
. Þú getur fengið
miðlarasnið og mismunandi stillingar frá þjónustuveitu
eða upplýsingadeild. Þessar stillingar geta verið fyrir
aðgangsstaði gagnatenginga sem og mismunandi
forrit í tækinu.
Til að tengjast við miðlara og fá stillingar fyrir tækið
þitt skaltu velja snið og svo
Valkostir
>
Hefja stillingu
.
Til að leyfa eða hafna móttöku stillinga frá þjónustuveitu
skaltu velja
Valkostir
>
Opna fyrir stillingar
eða
Loka fyrir stillingar
.
Stillingar miðlarasniðs
Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá
réttar stillingar.
Nafn miðlara
—Sláðu inn nafn stillingamiðlarans.
Auðkenn.nr. netþjóns
—Sláðu inn einkvæma númerið
til að auðkenna stillingamiðlarann.
Lykilorð miðlara
—Sláðu inn lykilorð til að miðlarinn beri
kennsl á tækið þitt.
Tegund tengingar
—Veldu hvaða gerð tengingar á að nota
til að tengjast miðlaranum:
Internet
eða
Bluetooth
.
Aðgangsstaður
—Veldu aðgangsstað sem á að nota
þegar tengst er við miðlarann.
Heimaveffang
—Sláðu inn veffang miðlarans.
Gátt
—Sláðu inn gáttartölu miðlarans.
Notandanafn
og
Lykilorð
—Sláðu inn notandanafn
þitt og lykilorð.
Leyfa stillingar
—Til að taka við stillingum frá
miðlaranum skaltu velja
Já
.
Samþ. allar sjálfkrafa
—Ef þú vilt að tækið biðji um
staðfestingu áður en það tekur við stillingum frá
miðlaranum skaltu velja
Nei
.
Sannvottun símkerfis
—Veldu hvort nota skal
sannvottun símkerfis.