Raddskipanir
Þú getur notað raddskipanir til að stjórna tækinu.
Nánari upplýsingar um hvaða raddskipanir tækið
styður er að finna í „Raddstýrð hringing“ á bls. 61.
Til að virkja raddskipanir sem gera þér kleift að
opna forrit og snið skaltu ýta á
og velja
Verkfæri
>
Raddskip.
>
Snið
. Tækið býr til raddmerki fyrir forritin
og sniðin. Raddskipanir eru notaðar með því að halda
inni hægri valtakkanum í biðstöðu og segja raddskipun.
Raddskipunin er nafn forritsins eða sniðsins eins og það
birtist á listanum.
Til að bæta fleiri forritum á listann skaltu velja
Valkostir
>
Bæta við forriti
. Til að bæta við annarri raddskipun sem
hægt er að nota til að opna forritið skaltu velja
Valkostir
>
Breyta skipun
og slá inn nýju raddskipunina sem texta.
Forðast skal að nota mjög stutt nöfn og skammstafanir.
Hægt er að hlusta á tilbúin raddmerki með því að velja
Valkostir
>
Spila raddskipun
.
Stillingum raddskipana er breytt með því að velja
Valkostir
>
Stillingar
. Til að slökkva á hljóðgervlinum
sem spilar upptekin raddmerki og -skipanir á tungumáli
tækisins skaltu velja
Hljóðgervill
>
Óvirkt
. Til að núllstilla
raddforritið (t.d. þegar skipt hefur verið um aðalnotanda
tækisins), skaltu velja
Núllstilla raddaðlögun
.
Verkfæri
109