Samstilling
Ýttu á
og veldu
Tenging
>
Samstilling
.
Samstilling
gerir þér kleift að samstilla minnismiðana þína, dagbókina,
tengiliði og tölvupóst við ýmis dagbókar- og
símaskrárforrit í samhæfri tölvu eða á internetinu.
Einnig er hægt að búa til og breyta samstillingum.
Samstillingarforritið notar SyncML-tækni við samstillingu.
Söluaðili forritanna sem samstilla á tækið við veitir frekari
upplýsingar um samhæfni SyncML.
Hægt er að fá samstillingar í sérstökum textaskilaboðum.
Sjá „Gögn og stillingar“ á bls.49.
Samstilling gagna
Á aðalskjá valmöguleikans
Samstilling
er hægt að skoða
mismunandi samstillingarsnið.
1
Veldu samstillingarsnið og svo
Valkostir
>
Samstilla
.
Staða samstillingarinnar sést á skjánum.
Hætt er við samstillingu áður en henni er lokið með því
að velja
Hætta við
.
2
Tilkynning birtist þegar samstillingu er lokið. Veldu
Já
til að skoða notkunarskrána með upplýsingum um það
hversu mörgum færslum var bætt við, uppfærðar, eytt
eða fleygt (ekki samstilltar) í tækinu og á miðlaranum.