Nokia N93i - Tónlist flutt

background image

Tónlist flutt

Hægt er að flytja tónlist frá samhæfri tölvu eða
öðru samhæfu tæki með samhæfri USB-snúru
eða um Bluetooth-tengingu. Nánari upplýsingar,
sjá „Bluetooth-tenging“ á bls. 91.

Til að uppfæra safnið þegar lögin í tækinu hafa verið
uppfærð skaltu fara í

Tónlistarsafn

og velja

Valkostir

>

Uppfæra Tónlistarsafn

.

Tölvan þarf að uppfylla eftirfarandi til að hægt sé að
flytja tónlist:

Microsoft Windows XP stýrikerfi (eða nýrra).

Samhæf útgáfa af Windows Media Player forritinu.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um samhæfni
Windows Media Player í Nokia N93i kaflanum
á vefsetri Nokia.

Nokia PC Suite 6.7 eða nýrri útgáfa.

Tónlist flutt úr tölvu

Hægt er að beita þrem mismunandi aðferðum við flutning
úr tölvu:

Til að sjá tækið á tölvunni sem ytri harðan disk sem
hægt er að flytja allar gagnaskrár í skaltu koma
á tengingu með samhæfri USB-snúru eða um
Bluetooth. Ef notuð er USB-snúra skaltu velja

background image

Tónlistarspilari

42

Gagnaflutningur

til að tengjast. Setja þarf samhæft

minniskort í tækið.

Til að samstilla tónlistina við Windows Media Player
skaltu stinga USB-snúrunni í samband og velja

Miðlunarspilari

sem tengingaraðferð. Setja þarf

samhæft minniskort í tækið.

Til að nota Nokia Music Manager í Nokia PC Suite,
skaltu stinga USB-snúrunni í samband og velja

PC Suite

sem tengingaraðferð.

Til að breyta sjálfgefinni stillingu USB-tengingar skaltu
ýta á

og velja

Tenging

>

Gagnasn.

.

Bæði Windows Media Player og Nokia Music Manager
í Nokia PC Suite eru til þess gerðir að flytja tónlistarskrár
eins og best verður á kosið. Upplýsingar um hvernig flytja
á tónlist með Nokia Music Manager, sjá leiðarvísirinn með
Nokia PC Suite.

Tónlist flutt með
Windows Media Player

Samstilling tónlistar getur verið mismunandi eftir því
hvaða útgáfa af Windows Media Player forriti er notuð.
Nánari upplýsingar er að finna í viðkomandi handbókum
og hjálparforritum sem fylgja Windows Media Player.

Handvirk samstilling

Þegar tækið hefur verið tengt við samhæfa tölvu velur
Windows Media Player handvirka samstillingu ef ekki er
nægilegt minni í tækinu. Með handvirkri samstillingu
er hægt að velja lög og spilunarlista sem á að flytja,
afrita eða eyða.

Í fyrsta skipti sem tækið er tengt þarf að slá inn nafn sem
nota skal sem nafn tækisins í Windows Media Player.

Til að flytja handvirkt val:

1

Þegar búið er að tengja tækið við
Windows Media Player skaltu velja tækið
í upplýsingaglugganum, ef fleiri en eitt tæki eru tengd.

2

Dragðu lögin eða plöturnar yfir í listagluggann til
samstillingar. Til að eyða lögum eða plötum skaltu velja
hlut á listanum og smella á Remove from list.

3

Gættu þess að listaglugginn innihaldi skrár sem þú vilt
samstilla og að nægilegt minni sé í tækinu. Smelltu
á Start Sync. til að hefja samstillinguna.

Sjálfvirk samstilling

Til að breyta sjálfgefna skráarflutningskostinum í Windows
Media Player skaltu smella á örina undir Sync, velja tækið
og smella á Set up Sync.. Hreinsaðu eða veldu reitinn
Sync this device automatically.

background image

Tónlistarspilari

43

Ef reiturinn Sync this device automatically er valinn og
tækið tengt uppfærist tónlistarsafnið sjálfvirkt með þeim
spilunarlistum sem valdir voru í Windows Media Player.

Ef engir spilunarlistar hafa verið valdir er allt tónlistarsafn
tölvunnar valið til samstillingar. Hafa skal í huga að
tölvusafnið getur innihaldið fleiri skrár en komast fyrir
í minni tækisins og á samhæfa minniskorti tækisins. Sjá
nánari upplýsingar í hjálparforriti Windows Media Player.

Spilunarlistarnir í tækinu eru ekki samstilltir við
spilunarlistana í Windows Media Player.