Nokia N93i - Tækið sérstillt

background image

Tækið sérstillt

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar
í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækið þitt gæti líka hafa verið sett upp með sérstökum
stillingum frá þjónustuveitu. Þessi samskipan kann að
fela í sér breytingar á valmyndarheitum, röð valmynda
og táknum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Ekki er víst að myndirnar í þessari handbók séu eins og
á skjá tækisins.

Upplýsingar um hvernig á að nota biðskjáinn til
að opna mest notuðu forritin á fljótlegan hátt
er að finna í „Virkur biðskjár“ á bls. 107.

Upplýsingar um
hvernig á að breyta
bakgrunnsmyndinni
á biðskjánum eða
skjávaranum er að finna
í „Útliti tækisins breytt“
á bls. 107.

Upplýsingar um hvernig
á að velja og breyta
hringitónum er að
finna í „Snið—val

tóna“ á bls. 105 og „Hringitónum bætt við
tengiliði“ á bls. 59.

Upplýsingar um hvernig á að breyta flýtivísum
sem settir eru á miðvaltakkann og vinstri og hægri
valtakkana í biðham, sjá „Biðhamur“ á bls. 113.

Til að breyta útliti klukkunnar sem sést í biðstöðu
skaltu ýta á

og velja

Forrit

>

Klukka

>

Valkostir

>

Stillingar

>

Útlit klukku

>

Með vísum

eða

Stafræn

.

Til að breyta opnunarkveðjunni í mynd eða hreyfimynd
skaltu ýta á

og velja

Verkfæri

>

Stillingar

>

Sími

>

Almennar

>

Opnun.kv. eða táknm.

.

Útliti aðalvalmyndarinnar er breytt með því að velja

Valkostir

>

Breyta útliti

>

Tafla

eða

Listi

.

Aðalvalmyndinni er endurraðað með því að að velja

Valkostir

>

Færa

,

Færa í möppu

eða

Ný mappa

.

Þú getur fært þau forrit sem þú notar sjaldan í möppur
og sett forrit sem þú notar oft á aðalvalmyndina.