Tenging
Gagnatengingar og aðgangsstaðir
Tækið þitt styður pakkagagnatengingar, svo
sem GPRS í GSM-símkerfi. Þegar tækið er notað
í GSM- og UMTS-símkerfum er hægt að hafa margar
gagnatengingar í gangi samtímis og aðgangsstaðir
geta deilt gagnatengingu.
Einnig er hægt að koma á gagnatengingu við þráðlaus
staðarnet. Sjá „Þráðlaust staðarnet“ á bls. 88. Aðeins
er hægt að tengjast við eitt þráðlaust staðarnet í einu.
Til að koma á gagnatengingu verður aðgangsstaður að
hafa verið valinn. Þú getur tilgreint mismunandi gerðir
aðgangsstaða, svo sem:
•
MMS-aðgangsstað til að senda og taka við
margmiðlunarboðum,
•
Aðgangsstað fyrir Vefforritið til að skoða
WML- eða XHTML-síður
•
Aðgangsstaður til að senda og taka á móti
tölvupósti eða til að tengjast við internetið
Upplýsingar um hvaða gerð af aðgangsstað þarf að
nota fyrir tiltekna þjónustu má fá hjá þjónustuveitu.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um pakkagagnaþjónustu
sem er í boði og áskriftina.
Aðgangsstaðir
Hægt er að fá aðgangsstaðastillingar í skilaboðum frá
þjónustuveitu. Sjá „Gögn og stillingar“ á bls. 49. Sumir
eða allir aðgangsstaðir gætu verið forstilltir fyrir tækið
af símafyrirtækinu og því er ekki víst að hægt sé að
breyta þeim, búa þá til eða fjarlægja.
táknar varinn
aðgangsstað.
táknar aðgangsstað fyrir pakkagögn og
aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet.
Ábending! Internetaðgangsstaður á þráðlausu
staðarneti er búinn til með því að ýta á
og velja
Tenging
>
Stj. teng.
>
Staðarnet í boði
>
Valkostir
>
Tilgreina aðgangsst.
.
Til að búa til nýjan aðgangsstað skaltu velja
Valkostir
>
Nýr aðgangsstaður
. Stillingum aðgangsstaðar er breytt
með því að velja
Valkostir
>
Breyta
. Fylgdu leiðbeiningum
þjónustuveitunnar.
Nafn tengingar
—Gefðu tengingunni lýsandi heiti.
Flutningsmáti
—Veldu gerð gagnatengingarinnar.
Það hvaða stillingareiti er hægt að velja fer eftir því hvaða
gagnatenging er valin. Fylltu út alla reiti sem eru merktir
með
Þarf að skilgr.
eða rauðri stjörnu. Aðra reiti þarf ekki
að fylla út nema þjónustuveitan hafi tekið það fram.
Stillingar
117
Til að geta notað gagnatengingu verður símafyrirtækið
að styðja hana og, ef með þarf, virkja hana fyrir
SIM-kortið þitt.
Pakkagögn
Fylgdu leiðbeiningum þjónustuveitunnar.
Nafn aðgangsstaðar
—Þú færð heiti aðgangsstaðarins
hjá þjónustuveitunni.
Notandanafn
—Notandanafn getur verið nauðsynlegt
til að koma á gagnatengingu og það fæst hjá
þjónustuveitunni.
Biðja um lykilorð
—Ef þú þarft að slá inn lykilorðið í hvert
skipti sem þú tengist við miðlara eða ef þú vilt ekki vista
lykilorðið í tækinu skaltu velja
Já
.
Lykilorð
—Það getur verið nauðsynlegt að nota lykilorð
til að koma á gagnatengingu og það fæst yfirleitt hjá
þjónustuveitunni.
Aðgangskort
—Veldu
Venjulegt
eða
Öruggt
.
Heimasíða
—Sláðu inn veffangið eða númer
skilaboðamiðstöðvar margmiðlunarboða,
eftir því hvaða aðgangsstað þú vilt setja upp.
Veldu
Valkostir
>
Frekari stillingar
til að breyta
eftirfarandi stillingum:
Gerð símkerfis
—Veldu
IPv4 stillingar
eða
IPv6 stillingar
.
Aðrar stillingar velta á því hvaða gerð af símkerfi þú velur.
IP-tala símans
(aðeins fyrir IPv4)—Sláðu inn IP-tölu
tækisins.
DNS-veffang
—Í
Fyrra DNS-veffang
skaltu slá inn
IP-tölu aðalnafnamiðlarans. Sláðu svo inn IP-tölu
aukanafnamiðlarans í
Síðara DNS-veffang
.
Vefföngin fást hjá internetþjónustunni.
Veff. proxy-miðlara
—Tilgreindu veffangið fyrir
proxy-miðlarann.
Númer proxy-gáttar
—Sláðu inn gáttarnúmer
proxy-miðlarans.
Þráðlaust staðarnet
Fylgdu leiðbeiningum þjónustuveitunnar.
Heiti þráðl. staðarnets
—Veldu
Slá inn handvirkt
eða
Leita að staðarnetum
. Ef þú velur netkerfi sem þegar er til
eru
Gerð þráðl. staðarnets
og
Öryggi þráðl. staðarnets
ákvörðuð út frá stillingum aðgangsstaðatækisins.
Gerð þráðl. staðarnets
—Veldu
Sértækt
til að koma
á sértækum tengingum og leyfa tækjum að senda og
taka við gögnum beint. Ekki þarf að nota þráðlaust
aðgangsstaðatæki.
Öryggi þráðl. staðarnets
—Veldu dulkóðunina:
WEP
,
802.1x
(ekki fyrir sértækar tengingar) eða
WPA/WPA2
.
Ef þú velur
Opið kerfi
er engin dulkóðun notuð.
Aðeins er hægt að nota WEP, 802.1x og WPA ef
netkerfið styður það.
Stillingar
118
Öryggisstillingar
—Sláðu inn öryggisstillingarnar:
Öryggisstillingarnar
WEP
eru eftirfarandi:
WEP-lykill í notkun
—Veldu WEP-lykilnúmer. Hægt er að
búa til allt upp í fjóra WEP-lykla. Sömu stillingar verður að
velja í aðgangsstaðatækinu fyrir þráðlausa staðarnetið.
Gerð sannvottunar
—Veldu
Opin
eða
Samnýtt
fyrir
sannvottunina á milli tækisins og aðgangsstaðartækisins.
Stillingar WEP-lykils
—Sláðu inn
WEP-dulkóðun
(lengd lykilsins),
Snið WEP-lykils
(
ASCII
eða
Sextánskt
)
og
WEP-lykill
(WEP-lyklagögnin á völdu sniði).
Öryggisstillingarnar fyrir
802.1x
og
WPA/WPA2
eru eftirfarandi:
WPA-stilling
—Veldu gerð sannvottunarinnar:
EAP
til að
nota EAP-viðbót eða
Forstilltur lykill
til að nota lykilorð.
Ljúktu við að tilgreina stillingarnar:
Still. f. EAP viðbætur
(aðeins fyrir
EAP
)—Sláðu
inn stillingarnar í samræmi við leiðbeiningar
þjónustuveitunnar.
Forstilltur lykill
(aðeins fyrir
Forstilltur lykill
)—
Sláðu inn lykilorð. Sama lykilorð verður að slá inn
í aðgangsstaðatækið fyrir þráðlausa staðarnetið.
TKIP-dulkóðun
—Veldu hvort þú vilt nota TKIP
(Temporal Key Integrity Protocol).
Heimasíða
—Tilgreindu heimasíðu.
Veldu
Valkostir
>
Frekari stillingar
og úr eftirfarandi:
IPv4 stillingar
:
IP-tala símans
(IP-tala tækisins),
Forskeyti undirnets
(subnet IP-tala),
Sjálfgefin gátt
(gáttin) og
DNS-veffang
—Sláðu inn IP-tölu aðal- og
aukanafnamiðlara. Vefföngin fást hjá internetþjónustunni.
IPv6 stillingar
>
DNS-veffang
—Veldu
Sjálfvirkir
,
Venjulegir
eða
Notandi skilgr.
.
Tilfallandi staðarnet
(aðeins fyrir
Sértækt
)—Til að
slá inn rásanúmer (1-11) handvirkt skaltu velja
Notandi skilgreinir
.
Veff. proxy-miðlara
—Sláðu inn veffang proxy-miðlarans.
Númer proxy-gáttar
—Sláðu inn gáttarnúmer
proxy-miðlarans.
Pakkagögn
Pakkagagnastillingarnar hafa áhrif á alla aðgangsstaði
sem nota pakkagagnatengingar.
Pakkagagnatenging
—Ef þú velur
Ef samband næst
og ert á símkerfi sem styður pakkagögn skráir tækið
sig á pakkagagnasímkerfið. Fljótlegra er að ræsa virka
pakkagagnatengingu. Ef ekkert pakkagagnasamband
er til staðar reynir tækið reglulega að koma
á pakkagagnatengingu. Ef þú velur
Ef með þarf
notar
tækið aðeins pakkagagnatengingu ef þú ræsir forrit
eða aðgerð sem þarfnast hennar.
Stillingar
119
Aðgangsstaður
—Heiti aðgangsstaðarins er nauðsynlegt
ef ætlunin er að nota tækið sem pakkagagnamótald
fyrir tölvu.
SIP-stillingar
SIP-stillingar (Session Initiation Protocol) er nauðsynlegar
fyrir suma sérþjónustu, svo sem samnýtingu hreyfimynda.
Þú getur fengið stillingar sendar í sérstökum
textaskilaboðum frá símafyrirtækinu þínu eða
þjónustuveitunni. Þú getur skoðað, eytt eða búið
til þessar sniðstillingar í
SIP-stillingar
. Sjá einnig
„Stillingar fyrir tengingar á milli einstaklinga“ á bls. 64.
Þráðlaust staðarnet
Sýna tiltæki
—Veldu hvort
birtist þegar hægt er að
tengjast við þráðlaust staðarnet.
Finna staðarnet
—Ef þú stillir
Sýna tiltæki
á
Já
skaltu
velja hversu oft tækið leitar að þráðlausum staðarnetum
og uppfærir vísinn.
Ítarlegri stillingar eru opnaðar með því að velja
Valkostir
>
Frekari stillingar
. Ekki er mælt með því að ítarlegri
stillingum fyrir þráðlaus staðarnet sé breytt.
Samskipanir
Hægt er að fá öruggar miðlarastillingar hjá
þjónustuveitunni í stillingaboðum. Einnig geta stillingarnar
verið vistaðar á USIM-kortinu. Hægt er að vista þessar
stillingar í tækinu, skoða þær eða eyða þeim í
Stillingar
.