Símkerfi
Tækið getur skipt sjálfkrafa á milli GSM og
UMTS-símkerfanna. GSM-símkerfið er táknað með
í biðstöðu. UMTS-símkerfið er táknað með
.
Símkerfi
(birtist aðeins ef það er stutt af
símafyrirtækinu)—Veldu hvaða símkerfi á að nota.
Ef þú velur
Tvöfalt kerfi
skiptir tækið sjálfkrafa á milli
GSM- og UMTS-símkerfanna í samræmi við kerfisstillingar
og reikisamninga á milli þjónustuveitna. Símafyrirtækið
gefur nánari upplýsingar.
Val á símafyrirtæki
—Veldu
Sjálfvirkt
til að stilla tækið
þannig að það leiti að og velji eitt af þeim símkerfum sem
eru í boði, eða
Handvirkt
til að velja símkerfið sjálfur af
lista yfir símkerfi. Ef tengingin rofnar við símkerfið sem var
valið handvirkt gefur tækið frá sér hljóðmerki og biður um
að símkerfi sé valið aftur. Símkerfið sem er valið verður að
vera með reikisamning við heimanetið þitt, þ.e. net þeirrar
þjónustuveitu sem lét í té SIM-kortið í tækinu.
Útskýring: Reikisamningur er samningur milli tveggja
eða fleiri farsímaþjónustuveitna um að leyfa notendum
einnar veitunnar að nota þjónustu hinna.
Uppl. um endurvarpa
—Veldu
Virkar
til að láta tækið gefa
til kynna þegar það er notað á farsímakerfi sem byggir
á örbylgjutækni (MCN) og til að virkja móttöku upplýsinga
frá endurvarpa.