Sími
Almennar
Tungumál síma
—Ef tungumáli skjátexta er breytt
í tækinu hefur það einnig áhrif á það hvernig dagsetningin
og tíminn birtast, sem og þau skiltákn sem eru notuð
(t.d. við útreikning).
Sjálfvirkt
velur tungumálið út frá
upplýsingunum á SIM-kortinu þínu. Tækið endurræsist
þegar nýtt tungumál er valið fyrir skjátexta.
Þegar stillingunum
Tungumál síma
eða
Tungumál texta
er breytt hefur það áhrif á öll forrit tækisins og breytingin
er virk þangað til stillingunum er breytt aftur.
Tungumál texta
—Þegar tungumálinu er breytt hefur
það áhrif á það hvaða stafi og sértákn er hægt að velja
þegar texti er ritaður og kveikt er á flýtirituninni.
Flýtiritun
—Stilltu flýtiritunina á
Virk
eða
Óvirk
í öllum
ritlum tækisins. Ekki er hægt að velja flýtiritun fyrir
öll tungumál.
Opnun.kv. eða táknm.
—Opnunarkveðjan eða táknið birtist
í stutta stund eftir að kveikt hefur verið á tækinu. Veldu
Sjálfvalin
til að nota sjálfgefnu myndina,
Texti
til að skrifa
opnunartexta eða
Mynd
til að velja mynd úr
Gallerí
.
Upprun. símastillingar
—Þú getur fært sumar stillingarnar
aftur í upprunalegt horf. Til þess þarftu læsingarnúmerið.
Sjá „Öryggi“, „Sími og SIM“ á bls. 120. Þegar stillingar
hafa verið færðar í upprunalegt horf getur það tekið lengri
tíma að ræsa tækið. Breytingin hefur engin áhrif á skjöl
og skrár.
Biðhamur
Virkur biðskjár
—Notaðu flýtivísa í forrit í biðstöðu.
Sjá „Virkur biðskjár“ á bls. 107.
Vinstri valtakki
—Tengdu flýtivísi fyrir vinstri
valtakkann (
) í biðstöðu.
Stillingar
114
Hægri valtakki
—Veldu flýtivísi fyrir hægri
valtakkann (
) í biðstöðu.
Forrit. í virk. biðskjá
—Veldu flýtivísa í forrit sem þú
vilt að birtist á virka biðskjánum. Aðeins er hægt að
velja þessa stillingu ef kveikt er á
Virkur biðskjár
.
Einnig er hægt að tengja flýtivísa við mismunandi
hliðar miðvaltakkans. Ekki er hægt að velja flýtivísa
miðvaltakkans þegar kveikt er á virka biðskjánum.
Skjátákn símafyrirt.
—Þessi stilling er aðeins í boði
ef þú hefur sótt og vistað skjátákn símafyrirtækis.
Veldu
Óvirkt
ef þú vilt ekki að skjátáknið birtist.
Skjár
Ljósnemi
—Til að breyta birtustigi skjásins og gera hann
þannig dekkri eða ljósari. Birta skjásins stillist hins
vegar sjálfkrafa þegar aðstæður kalla á það.
Sparnaður hefst eftir
—Veldu hversu langur tími líður
þar til kviknar á skjávaranum.
Tímamörk ljósa
—Veldu tímann sem þú vilt að líði þar
til slokknar á baklýsingu skjásins.
Ytri skjár
Veldu
Eigið val
og síðan úr eftirtöldum valkostum:
Litaval
—Veldu liti á ytri skjáinn. Hægt er að skoða litavalið
með því að velja
Valkostir
>
Forskoða
og loka símanum.
Hægt er að forskoða ýmiss konar litaval með því að skruna
upp eða niður með hliðarskruntakkanum.
Ljós á ytri skjá
—Veldu lit fyrir ytri vísinn. Hægt er að velja
mismunandi liti fyrir innhringingar og tölvupóst sem ekki
hefur verið svarað og ólesin skilaboð. Hleðsla á rafhlöðu
getur annaðhvort verið stillt á
Kveikt
eða
Slökkt
.
Lokamynd
—Til að velja stutta hreyfimynd sem birtist
þegar símanum er lokað.
Lokatónn
—Til að velja stutt lag sem er spilað þegar
símanum er lokað.
Opnunartónn
—Til að velja stutt lag sem er spilað þegar
síminn er opnaður og er í biðstöðu.
Veldu
Símtöl
og síðan úr eftirtöldum valkostum:
Svara við opnun flipa
—Veldu
Nei
eða
Já
.
Ef flipa er lokað
—Veldu
Lagt á
eða
Kveikt á hátalara
.
Stillingar
115