Nokia N93i - Öryggi

background image

Öryggi

Sími og SIM

Beðið um PIN-númer

—Þegar þessi stilling er virk er beðið

um númerið í hvert skipti sem kveikt er á tækinu. Ekki er
víst að öll SIM-kort leyfi að beiðni um PIN-númer sé gerð
óvirk. Sjá „Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir
læsingu“ á bls. 120.

PIN-númer

,

PIN2-númer

og

Númer fyrir læsingu

Þú getur breytt númerinu fyrir læsingu auk PIN- og
PIN2-númeranna. Þessi númer geta aðeins innihaldið tölur

background image

Stillingar

120

frá 0 til 9. Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú
gleymir einhverjum af þessum númerum. Sjá „Útskýringar
á PIN-númerum og númerum fyrir læsingu“ á bls. 120.

Forðastu að nota aðgangsnúmer sem líkist
neyðarnúmerum, t.d. 112, til að komast hjá því
að hringja óvart í neyðarnúmer.

Sjálfv. læsingartími

—Þú getur valið tímann sem líður

þar til tækið læsist sjálfkrafa. Veldu

Enginn

til að slökkva

á þessari stillingu.

Tækið er opnað með því að slá inn númer fyrir læsingu.

Þegar tækið er læst kann að vera hægt að hringja
í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.

Ábending! Til að læsa tækinu handvirkt skaltu

ýta á

. Listi yfir skipanir opnast. Veldu

Læsa síma

.

Læsa ef skipt um SIM

—Þú getur látið tækið biðja um

númerið fyrir læsingu þegar óþekkt SIM-kort er sett í það.
Tækið heldur þá saman lista yfir þau SIM-kort sem það
viðurkennir sem kort eigandans.

Lok. notendahópur

—Þú getur tilgreint hóp fólks sem

þú getur hringt í og sem getur hringt í þig (sérþjónusta).

Þegar símtöl eru takmörkuð við lokaða notendahópa kann
að vera hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er
forritað í tækið.

Staðfesta SIM-þjón.

—Þú getur látið tækið birta

staðfestingarboð þegar þú notar SIM-kortsþjónustu
(sérþjónusta).

Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir læsingu

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum númerum.

PIN-númer—Númerið hindrar að SIM-kortið sé notað
í leyfisleysi. PIN-númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir yfirleitt
með SIM-kortinu. Þegar PIN-númerið er slegið rangt inn
þrisvar sinnum er númerinu lokað og þá þarf að slá inn
PUK-númerið til að opna það.

UPIN-númer—Númerið kann að fylgja með USIM-kortinu.
USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til að nota
í UMTS-farsímum.

PIN2-númer—Númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir sumum
SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta notað suma
valkosti tækisins.

Læsingarnúmer (öryggisnúmer)—Hægt er að nota þetta
númer (5 tölustafir) til að læsa tækinu og hindra þannig
að það sé notað í leyfisleysi. Upphaflega númerið fyrir
læsingu er 12345. Breyttu númerinu fyrir læsingu til
að koma í veg fyrir óleyfilega notkun tækisins. Haltu
nýja númerinu leyndu og á öruggum stað fjarri tækinu.
Hafa skal samband við þjónustuveituna ef einhver
af þessum númerum glatast.

background image

Stillingar

121

PUK- og PUK2-númer—Þessi númer (8 tölustafir)
eru nauðsynleg til að breyta lokuðu PIN-númeri eða
PIN2-númeri. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu
skaltu hafa samband við símafyrirtækið sem lét þig
fá SIM-kortið.

UPUK-númer—Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt til
að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef númerið fylgir ekki með
USIM-kortinu skaltu hafa samband við þjónustuveituna
sem lét þig fá USIM-kortið.

Vottorðastjórnun

Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð
til að staðfesta uppruna hugbúnaðar.

Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir
heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu þínu. Ýttu á

til að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann er
til staðar.

Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka, öðru
vefsvæði eða miðlara þar sem trúnaðarupplýsingar eru
sendar. Einnig ætti að nota þau til að minnka hættuna
á vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði og tryggja
áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu
og settur upp.

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi

verulega úr þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og
uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo

að aukið öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn
ein og sér. Vottorðastjórinn verður að vera með rétt,
sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi
fáist. Vottorð eru bundin tilteknum tíma. Ef textinn

Vottorð útrunnið

eða

Vottorð ekki enn gilt

birtist þó

svo að vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt
dag- og tímasetning er á tækinu.

Upplýsingar um vottorð skoðaðar—áreiðanleiki
kannaður

Þú getur aðeins verið viss um rétt auðkenni miðlara
þegar búið er að kanna undirskrift og gildistíma
miðlaravottorðsins.

Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur
eða ef tækið inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.

Upplýsingar um vottorð eru skoðaðar með því að fletta
að því og velja

Valkostir

>

Upplýs. um vottorð

. Þegar

upplýsingar um vottorð eru opnaðar er gildi vottorðsins
kannað og einhver af eftirfarandi athugasemdum
getur birst:

Vottorði ekki treyst

—Þú hefur ekki valið vottorðið fyrir

nein forrit. Sjá „Trauststillingum breytt“ á bls. 122.

Vottorð útrunnið

—Gildistími vottorðsins hefur runnið út.

Vottorð ekki enn gilt

—Vottorðið hefur ekki enn

tekið gildi.

background image

Stillingar

122

Vottorð skemmt

—Það er ekki hægt að nota vottorðið.

Hafðu samband við útgefanda vottorðsins.

Trauststillingum breytt

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og
að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.

Flettu að heimildavottorði og veldu

Valkostir

>

Stillingar

f. traust

. Listi, sem fer eftir vottorðinu sem valið er, birtist

yfir forritin sem geta notað það. Dæmi:

Symbian-uppsetning

>

—Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Symbian-stýrikerfisforrits.

Internet

>

—Vottorðið getur sannreynt miðlara.

Uppsetning forrita

>

—Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Java-forrits.

Veldu

Valkostir

>

Breyta still. f. traust

til að

breyta gildinu.

Færsluauðkenni

Sumar tónlistarskrár sem eru varðar með höfundarrétti
geta innihaldið færsluauðkenni. Veldu hvort auðkennið
fylgi tónlistarskránni þegar hún er send eða framsend.
Eigendur tónlistarskráa geta notað auðkenni til að fylgjast
með dreifingu skráa.

EAP viðbætur

Hægt er að skoða þær EAP-viðbætur sem eru settar
upp í tækinu (sérþjónusta). Sumir internetaðgangsstaðir
sem notað þráðlaust staðarnet sem flutningsmáta og
WPA-öryggi nota viðbætur til sannvottunar.