
Myndavél
Í Nokia-tækinu eru tvær myndavélar, önnur með hárri
upplausn á hlið tækisins (aðalmyndavélin) og hin með
minni upplausn fyrir ofan aðalskjáinn (aukamyndavélin).
Hægt er að nota báðar myndvélarnar til að taka venjulegar
myndir og hreyfimyndir með andlits- eða
landslagsstillingu.
Nokia-tækið styður allt að 2048x1536 punkta
myndupplausn í aðalmyndavélinni. Myndupplausnin
í þessum efnum getur virst önnur.
Kyrrmyndir og hreyfimyndir vistast sjálfkrafa í
Myndir &
hr.m.
í
Gallerí
. Myndir eru teknar á .jpg-sniði. Myndskeið
eru tekin upp á .mp4-sniði eða 3GPP-sniði með endingunni
.3gp (
Samnýting
). Sjá „Stillingar fyrir hreyfimyndir“
á bls. 26.
Hægt er að senda kyrrmyndir og hreyfimyndir
í margmiðlunarboðum, sem viðhengi í tölvupósti
eða um Bluetooth eða innrauða tengingu. Einnig
er hægt að samnýta kyrrmyndir og myndskeið
í samhæfum netalbúmum, bloggsíðum eða í annarri
samnýtingarþjónustu á netinu. Sjá „Samnýting“ á bls.39.