Nokia N93i - Myndsímtöl

background image

Myndsímtöl

Myndsímtöl geta farið fram í opinni stöðu og skjástöðu.
Sjá „Staða tækisins“ á bls. 13.

Nota skal skjástöðuna þegar handfrjáls myndsímtöl eiga
að fara fram.

Í myndsímtali geta þú og viðmælandi þinn séð
rauntímahreyfimynd hvor af öðrum. Viðmælandi
þinn sér þá hreyfimyndina sem myndavélin þín tekur.

Til að geta hringt myndsímtal þarftu USIM-kort og að vera
innan þjónustusvæðis UMTS-símkerfis. Þjónustuveitan
gefur upplýsingar um þá myndsímtalaþjónustu sem er
í boði og áskriftina. Aðeins er hægt að koma á myndsímtali
við einn aðila í einu. Hægt er að koma á myndsímtali við
samhæfan farsíma eða ISDN-tengd tæki. Ekki er hægt að
koma á myndsímtölum þegar annað símtal, myndsímtal
eða gagnasímtal er virkt.

Tákn:

Tækið þitt er ekki að taka við hreyfimynd (annaðhvort

sendir viðmælandinn ekki hreyfimyndina eða símkerfið
sendir hana ekki).

Þú hefur hafnað myndsendingu úr tækinu þínu.

Upplýsingar um hvernig á að senda kyrrmynd í stað
hreyfimyndar er að finna í „Símhringing“ á bls. 115.

1

Til að koma á myndsímtali í opinni stöðu skaltu slá
inn númerið í biðstöðu eða velja

Tengiliðir

og

síðan tengilið.

2

Veldu

Valkostir

>

Myndsímtal

.

Ef þú vilt koma á handfrjálsu myndsímtali skaltu ræsa
skjástöðuna þegar sá sem hringt er í hefur svarað.

Það getur tekið nokkurn tíma að koma á myndsímtali.

Bíð eftir hreyfimynd

birtist. Ef ekki tekst að koma

á tengingu, (t.d. ef símkerfið styður ekki myndsímtöl eða
móttökutækið er ekki samhæft), er spurt hvort þú viljir
hringja venjulegt símtal eða senda textaskilaboð í staðinn.

background image

Hringt úr tækinu

63

Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær
hreyfimyndir og heyrt hljóð úr hátalaranum.
Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu (

) og þá

heyrir þú aðeins í honum og sérð að auki kyrrmynd eða
gráan bakgrunn.

Ábending! Ýttu á

eða

til að auka eða minnka

hljóðstyrkinn meðan á símtali stendur.

Til að velja hvað sent er skaltu velja

Virkja

eða

Óvirkja

>

Hreyfimynd

,

Hljóð

eða

Hljóð & hreyfimynd

.

Veldu

Stækka

eða

Minnka

til að stækka eða minnka

myndina af þér. Stækkunar/minnkunarvísirinn sést efst
á skjánum.

Hægt er að víxla myndunum sem eru sendar eða mótteknar
á skjánum með því að velja

Víxla myndum

.

Jafnvel þó þú hafnir myndsendingu í myndsímtali
er tekið gjald fyrir símtalið sem myndsímtal.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um verð.

Myndsímtalinu er lokið með því að ýta á

.