
Netprentun
Með
Netprentun
er hægt að panta útprentun af myndum
á netinu og fá þær sendar beint heim til sín eða í verslun,
þangað sem þær eru svo sóttar. Einnig er hægt að panta
ýmsar vörur með tiltekinni mynd, svo sem krúsir eða
músarmottur. Það fer eftir þjónustuveitunni hvaða
vörur eru í boði.
Til að hægt sé að nota sér
Netprentun
þarf a.m.k. ein
prentstillingaskrá að vera uppsett í tækinu. Hægt er að fá
skrárnar hjá prentþjónustuveitum sem styðja
Netprentun
.
Nánari upplýsingar um forritið er að finna í bæklingi um
viðbótarforrit fyrir tækið á www.nseries.com/support eða
vefsetri Nokia í eigin landi.