Spurningar & Svör
Lykilorð
Spurning: Hvað er lykilorðið mitt fyrir læsingar-,
PIN-eða PUK-númerin?
Svar:
Sjálfgefna númerið er 12345. Hafðu samband
við söluaðilann ef þú týnir eða gleymir
læsingarnúmerinu. Ef þú gleymir eða týnir PIN- eða
PUK-númeri, eða ef þú hefur ekki fengið slíkt
númer, skaltu hafa samband við þjónustuveituna.
Upplýsingar um lykilorð má fá hjá
aðgangsstaðaþjónustu, t.d. netþjónustuveitu,
þjónustuveitu eða símafyrirtæki.
Forrit svarar ekki
Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er frosið,
þ.e. svarar ekki?
Svar:
Haltu inni
takkanum til að opna skiptiglugga
forrita. Flettu svo að forritinu og ýttu á
.
Bluetooth-tenging
Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns?
Svar:
Kannaðu hvort Bluetooth-tengingin sé virk í báðum
tækjunum.
Gakktu úr skugga um að fjarlægðin á milli tækjanna
tveggja sé ekki meiri en 10 metrar (33 fet) og að
ekki séu veggir eða aðrar hindranir á milli þeirra.
Gakktu úr skugga um að hitt tækið sé stillt
á sýnilegt.
Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf.
Spurning: Af hverju get ég ekki slitið Bluetooth-tengingu?
Svar:
Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú
slitið tengingunni í hinu tækinu eða slökkt
á Bluetooth-tengingunni í tækinu þínu.
Veldu
Tenging
>
Bluetooth
>
Slökkt
.
Vafraþjónusta
Spurning: Hvað geri ég ef þessi skilaboð birtast:
Enginn
gildur aðgangsstaður tilgreindur. Tilgreina
í Þjónustustillingum.
?
Svar:
Settu inn réttar vafrastillingar. Hafðu samband
við þjónustuveituna þína til að fá leiðbeiningar.
Myndavél
Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?
Svar:
Fjarlægðu plasthlífina sem er yfir skjánum og
myndavélarlinsunni. Gakktu úr skugga um að
hlífðargler myndavélarlinsunnar sé hreint.
Spurning: Hvers vegna heyrist í myndavélinni þegar autofocus
eða súmm er notað?
Úrræðaleit
126
Svar:
Súmm- og AF-linsuhreyfingar gefa frá sér hljóð.
Veldu
Valkostir
>
Stillingar
>
Ákjósanleg
stækkun við upptöku
>
Slökkt
til að ekki
heyrist neitt hljóð þegar súmmað er með linsunni
við upptöku.
Spurning: Hvers vegna heyrist gjarnan meira þegar myndir
eða hreyfimyndir eru teknar með næturstillingu
þegar skuggsýnt er, heldur en þegar venjuleg
stilling er notuð?
Svar:
Útgangsmerki myndflögunnar er magnað meira
í næturstillingu, til að gefa betri lýsingu þegar
skuggsýnt er, heldur en í venjulegri stillingu.
Á móti kemur að meira heyrist þegar myndir
og hreyfimyndir eru teknar.
Spurning: Hvers vegna virðast VGA-myndrammar skörðóttir
þegar kveikt er á myndstöðugleika (video
stabilization)?
Svar:
Hver myndrammi er stækkaður úr lítilli
stærð innan VGA í VGA-stærð þegar kveikt er
á myndstöðugleika. Þess vegna eru gæði hvers
ramma minni en ella.
Skjár
Spurning: Hvers vegna sjást daufir, upplitaðir eða skærir
punktar á skjánum þegar ég kveiki á tækinu?
Svar:
Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám.
Á sumum skjám geta verið dílar eða punktar sem
lýsa annaðhvort stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki
um að ræða galla heldur eðlilegan hlut.
Heimakerfi (UPnP)
Spurning: Af hverju get ég ekki samnýtt skrár í öðrum
tækjum?
Svar:
Gakktu úr skugga um að þú hafir sett upp
stillingarnar fyrir heimakerfið. Veldu
Tenging
>
Heimanet
>
Samnýta efni
>
Samnýting efnis
og þá styður tækið UpnP.
Notkunarskrá
Spurning: Af hverju er notkunarskráin tóm?
Svar:
Ef til vill hefurðu valið síu og engin samskipti
hafa verið skráð sem hæfa henni. Hægt er að
skoða öll samskipti með því að velja
Forrit
>
Notkunarskrá
>
Valkostir
>
Sía
>
Öll samskipti
.
Lítið minni
Spurning: Hvað get ég gert ef minnið í tækinu er lítið?
Svar:
Hægt er að eyða eftirfarandi hlutum reglulega
til að komast hjá því að minnið fyllist:
•
Skilaboðum úr möppunum
Innhólf
,
Uppköst
og
Sendir hlutir
í
Skilaboð
•
Móttekinn tölvupóst úr minni tækisins
•
Vistuðum vefsíðum
•
Myndum í
Gallerí
Til að eyða tengiliðaupplýsingum, dagbókaratriðum, teljurum,
kostnaðarteljurum, leikjastigum, eða hvaða gögnum öðrum
sem er, skaltu opna viðkomandi forrit til að fjarlægja gögnin.
Ef verið er að eyða mörgum atriðum og ein eftirfarandi
Úrræðaleit
127
athugasemda birtist:
Ekki nægilegt minni fyrir aðgerð. Eyða
þarf einhv. gögnum fyrst.
eða
Lítið minni eftir. Eyða þarf
einhverjum gögnum.
skaltu reyna að eyða einu atriði í einu
(með því að eyða fyrst því sem tekur minnst pláss).
Spurning: Hvernig get ég vistað gögnin mín?
Svar:
Vistaðu gögnin með einni af eftirfarandi leiðum:
•
Notaðu Nokia PC Suite til að búa til öryggisafrit af öllum
gögnum og setja það á samhæfa tölvu.
•
Sendu myndir á tölvupóstfangið þitt og vistaðu svo
myndirnar í tölvunni.
•
Sendu gögn með Bluetooth-tengingu í samhæft tæki.
•
Vistaðu gögn á samhæfu minniskorti.
Skilaboð
Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið?
Svar:
Tengiliðarspjaldið inniheldur hvorki símanúmer né
tölvupóstfang. Bættu upplýsingunum sem vantar
á tengiliðarspjaldið í
Tengiliðir
.
Margmiðlunarboð
Spurning: Hvað á ég að gera þegar tækið getur ekki
tekið við margmiðlunarboðum vegna þess að
minnið er fullt?
Svar:
Í villuboðunum koma fram upplýsingar um hvað
þarf að losa um mikið minni:
Ekki hægt að sækja
skilaboð. Eyða verður einhverjum gögnum fyrst.
Til að sjá hvers konar gögn eru geymd í símanum og
hversu mikið minni mismunandi gögn nota skaltu
velja
Skr.stj.
>
Valkostir
>
Minnisupplýsingar
.
Spurning: Tilkynningin
Sæki skilaboð
birtist í stutta stund.
Hvað er að?
Svar:
Tækið er að reyna að sækja margmiðlunarboð frá
skilaboðastöðinni.
Gakktu úr skugga um að stillingar fyrir
margmiðlunarboð séu rétt valdar og að símanúmer
og vefföng séu rétt. Veldu
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
.
Spurning: Hvernig get ég lokað gagnatengingu þegar tækið
kemur henni alltaf á aftur?
Svar:
Til að koma í veg fyrir að tækið komi
á gagnatengingu skaltu velja
Skilaboð
og svo eitt
af eftirtöldu:
Þegar boð berast
>
Sækja síðar
—til að láta
margmiðlunarboðamiðstöðina vista skilaboðin sem
þú vilt sækja síðar, t.d. eftir að þú hefur athugað
stillingarnar. Eftir þessa breytingu þarf tækið að
senda upplýsingaboð til símkerfisins. Til að sækja
skilaboðin strax skaltu velja
Sækja strax
.
Þegar boð berast
>
Hafna skilaboðum
—til að
hafna öllum margmiðlunarboðum sem þér hafa
verið send. Eftir þessa breytingu þarf tækið að
senda upplýsingaboð til símkerfisins og
skilaboðamiðstöð margmiðlunarboðanna eyðir
öllum margmiðlunarboðum sem bíða þess að
verða sótt.
Úrræðaleit
128
Móttaka margm.
>
Óvirk
—til að hunsa öll
margmiðlunarboð sem berast. Eftir þessa breytingu
kemur tækið aldrei á tengingu við farsímakerfið
vegna margmiðlunarboða.
Tenging við tölvu
Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með að tengja tækið
við tölvuna mína?
Svar:
Gakktu úr skugga um að Nokia PC Suite sé uppsett
og í gangi á tölvunni þinni. Nánari upplýsingar er að
finna í notendahandbókinni fyrir Nokia PC Suite
á DVD-diskinum. Til að sjá upplýsingar um notkun
PC Suite skaltu skoða hjálparvalmyndina í Nokia
PC Suite eða þjónustusíðurnar á www.nokia.com.
Þráðlaust staðarnet
Spurning: Hvers vegna get ég ekki séð aðgangsstað fyrir
þráðlaust staðarnet þó svo ég viti að ég er innan
móttökusvæðis hans?
Svar:
Verið getur að aðgangsstaðurinn noti falinn
SSID-kóða. Þú getur aðeins fengið aðgang að
netkerfum sem nota falinn SSID-kóða ef þú veist
kóðann og hefur búið til internetaðgangsstað fyrir
þráðlausa staðarnetið í Nokia-tækinu þínu.
Spurning: Hvernig slekk ég á þráðlausu staðarneti
í Nokia-tækinu mínu?
Svar:
Þú getur ekki slökkt á þráðlausu staðarneti
í Nokia-tækinu þínu. Til að spara rafhlöðuna getur
þú hins vegar stillt Nokia-tækið þannig að það leiti
ekki að netkerfum í boði.
Til að slökkva á leitinni:
1
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Stillingar
>
Samband
>
Þráðlaust staðarnet
.
2
Veldu
Finna staðarnet
>
Aldrei
.
3
Breytingarnar eru vistaðar með því að ýta á
Lokið
.
Þegar
Finna staðarnet
er stillt á
Aldrei
fylgist Nokia-tækið
ennþá með netkerfum á svæðinu og hægt er að nota þráðlaus
staðarnet líkt og vanalega.