Nokia N93i - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt
getur það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal
alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU

Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun
þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem
hún kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR Fara
skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal
hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við
akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.

TRUFLUN Öll þráðlaus tæki geta verið
næm fyrir truflunum, sem getur haft áhrif
á virkni þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM
Á SJÚKRASTOFNUNUM
Virða skal allar
takmarkanir. Slökkva skal á tækinu nálægt
lækningabúnaði.

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM
Í FLUGVÉLUM
Virða skal allar takmarkanir.
Þráðlaus tæki geta valdið truflunum
í flugvélum.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN
ELDSNEYTI ER TEKIÐ
Ekki nota tækið nærri

eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við
eldsneyti eða sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM
VERIÐ ER AÐ SPRENGJA
Virða skal allar

takmarkanir. Ekki nota tækið þar sem verið
er að sprengja.

NOTIST AF SKYNSEMI Notist aðeins
í þeim stöðum sem lýst er í leiðbeiningum
með vörunni. Forðast skal óþarfa snertingu
við loftnetið.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA Aðeins
viðurkennt starfsfólk má setja upp eða
gera við þessa vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR Aðeins
má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður.
Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

VATNSHELDNI Tækið er ekki vatnshelt.
Halda skal því þurru.

background image

9

ÖRYGGISAFRIT Muna skal að taka öryggisafrit
eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar
sem geymdar eru í tækinu.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI Þegar tækið
er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók
með því vandlega, einkum upplýsingar um
öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

NEYÐARSÍMTÖL Tryggja skal að kveikt sé
á símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar.
Takkaborðið er aðeins virkt þegar flipinn
er uppi. Ýta skal á endatakkann eins oft

og þarf til að hreinsa skjáinn og fara aftur
í biðstöðu. Sláðu inn neyðarnúmerið og ýttu
á hringitakkann. Gefa skal upp staðarákvörðun.
Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu
leyfi til þess.

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í handbókinni er samþykkt
til notkunar í EGSM 900, 1800, 1900 og UMTS 2100
símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar
um símkerfi.

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt.

Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt
sé að afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir,
tónlist (þ.m.t. hringitóna) og annað efni.

Tækið styður internettengingar og aðrar tengiaðferðir.
Líkt og með tölvur geta vírusar, skaðleg skilaboð og forrit,
ásamt öðru skaðlegu efni haft áhrif á tækið. Gæta skal
varúðar og aðeins opna skilaboð, samþykkja tengibeiðnir,
hlaða niður efni og samþykkja uppsetningar frá traustum
aðilum. Til að auka öryggi tækisins er ráðlegt að setja upp,
nota og uppfæra reglubundið bæði vírusvarnarbúnað,
eldvegg og annan slíkan hugbúnað í tækinu og
tengdum tölvum.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,

annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu.
Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra
tækja getur valdið truflun eða hættu.

Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word,
PowerPoint og Excel (Microsoft Office 2000, XP og 2003).
Ekki er hægt að skoða eða breyta öllum skráargerðum.

Þegar tækið er í notkun, t.d. þegar verið er að samnýta
hreyfimyndir eða háhraðatenging er virk, getur það
hitnað. Slíkt er yfirleitt eðlilegt. Ef grunur leikur
á að tækið vinni ekki rétt skal fara með það til
næsta viðurkennda þjónustuaðila.

background image

10

Tækið kann að innihalda bókamerki eða tengla sem veita
aðgang að síðum þriðju aðila sem tengjast ekki Nokia.
Nokia hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þessum síðum.
Ef valið er að heimsækja þessar vefsíður skal beita sömu
öryggisráðstöfunum og fyrir allar aðrar vefsíður.

Sérþjónusta

Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að
þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi.
Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu.
Ekki er hægt að nota þessa valkosti í öllum símkerfum.
Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram
á sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu. Leiðbeiningar
ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá
þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir
sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu.
Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi
og þjónustu.

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar
í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækið kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann
heitum, röð og táknum valmynda að hafa verið breytt.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL)
sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Fyrir sumar aðgerðir
í tækinu, eins og MMS, netskoðun, tölvupóst og niðurhal
efnis um vafra eða með MMS, þarf símkerfisstuðning við
viðkomandi tækni.

Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá
seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan
eða annar söluaðili.

Aukahlutir, rafhlöður
og hleðslutæki

Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið
áður en rafhlaðan er fjarlægð.

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau
eru notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar
þegar það er hlaðið orku frá DC-4, AC-3, og AC-4
hleðslutækjum og AC-1, ACP-8, ACP-9, ACP-12, LCH-8,
LCH-9, eða LCH-12 hleðslutækjum þegar þau eru notuð
með millistykkinu CA-44.

Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-5F rafhlöðu.

background image

11

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki

og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með
þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti
öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun
getur fylgt hætta.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti
sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukahlutur er
tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.